AÐGENGI
Sýningin Ferðalok ber heiti eins ljóða skáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Hún fjallar um manninn, skáldið og náttúrufræðinginn Jónas Hallgrímsson og er sett upp í tilefni 200 ára fæðingarafmælis hans en Jónas fæddist á Hrauni í Öxnadal 16. nóvember árið 1807. Jónasar Hallgrímssonar er jafnan minnst sem listaskáldsins góða. Hann var jafnframt með lærðustu mönnum síns tíma hér á landi. Auk lokaprófs í náttúruvísindum hafði hann próf frá Bessastöðum, studiosus theologiæ, sem gerði hann gjaldgengan til prestsembættis á Íslandi, og candidatus philosophiæ próf með ágætiseinkunn frá Hafnarháskóla. Jónas var einn stofnenda tímaritsins Fjölnis en þau skrif og þýðingar sem þar birtust áttu mikinn þátt í endurnýjun íslensks ritmáls og höfðu langvinn áhrif á menningar- og stjórnmálalíf Íslendinga. Sýningin er gerð að frumkvæði menntamálaráðuneytisins sem skipaði nefnd til að undirbúa afmælishald á árinu. Handrit, myndir, munir og önnur sýningargögn eru frá ýmsum söfnum hérlendis og í Danmörku og hafa sum hver ekki komið fyrir almennings sjónir áður.
|
Ferðalok - Jónas Hallgrímsson í Þjóðmenningarhúsinu
Heimilisfang:
Hverfisgötu 15
Stadur:
101 Miðbær
Landshluti:
Reykjavík
Simi:
545-1400
Fax:
545-1401
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
Opið daglega frá kl. 11 - 17. Ókeypis aðgangur á miðvikudögum. Ókeypis leiðsögn fyrir skólahópa.
Tegund stofnunar:
Sýning(Menning)
Safnstjóri / forstöðumaður:
Sýning á vegum menntamálaráðuneytisins
/safnastarf/upload/files/templates/museums/149f9c56-8603-4366-897b-47eaffdc8c97_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 21.12.2007 11:13:02





