AÐGENGI
Hvalasafnið á Húsavík gegnir lykilhlutverki í fræðslu og upplýsingamiðlun um hvali og lífríki þeirra hér við land ásamt því að veita almennar upplýsingar um málefni er varða hvali og samskipti manna og hvala, s.s. sögu hvalveiða og hvalaskoðunar. Hvalasafninu er einnig ætlað að safna upplýsingum, sögum, gögnum og gripum sem tengjast makmiðum safnsins ásamt því að stuðla að rannsóknum á hvölum án þess að skaða þá. Þá er safninu ætlað að verka og varðveita beinagrindur af hvölum sem festast í veiðarfærum eða stranda við Ísland eftir því sem ástæða þykir til eða aðstæður leyfa. Safnið skal einnig leitast við að miðla almennri fræðslu um lífríki sjávar og umgengni við náttúruna. Með fræðslu og þekkingaröflun um hvali og lífríki þeirra eykur Hvalasafnið á fræðslugildi hvalaskoðunarferða sem farnar eru frá Húsavík og víðar.
|
Hvalasafnið á Húsavík
Heimilisfang:
Hafnarstétt 1
Stadur:
640-641 Húsavík og nágr.
Landshluti:
Norðurland
Simi:
414 2800
Fax:
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
Júní, júlí og ágúst alla daga kl. 09:00 - 19:00Maí og september alla daga kl. 10:00 - 17:00 Aðra mánuði skv. samkomulagi.
Tegund stofnunar:
Náttúruminjasafn
Safnstjóri / forstöðumaður:
Erla Sigurðardóttir
/safnastarf/upload/files/templates/museums/2cf14d9f-2410-4915-8ea5-ab66278f1096_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 17.2.2009 14:06:26





