AÐGENGI
Helgi Hálfdanarson er afkastamesti bókmenntaþýðandi Íslendinga fyrr og síðar. Fyrst munu hafa birst nokkrar ljóðaþýðingar, en síðar áttu eftir að fylgja mörg söfn þýðinga á ljóðum skálda í flestum heimsálfum, svo sem sjá má á sýningunni Handan um höf, sem er heiti á einu ljóðasafninu. Helgi vann síðan það þrekvirki að þýða öll leikrit Shakespeares og hafa þau verið gefin út á prenti. Árið 1990 birtust á einni bók þýðingar Helga á hartnær öllum grískum harmleikjum sem varðveist hafa. Jafnframt hefur Helgi þýtt ýmis önnur fremstu leiksviðsverk heims. Langt er frá upp talið allt þetta ótrúlega lífsverk og má t.d. minna á þýðingu Helga á Kóraninum og söfn sagna frá ýmsum heimsálfum. Helgi hefur tekið þátt í menningarumræðu dagsins, eins og ótal greinar hans í blöðum bera vitni um. Greinar Helga hafa verið gefnar út í bókum og einnig hefur hann í riti fjallað um hugðarefni sín; skáldskap, leikritun og málrækt. Helgi hefur og sett fram nýstárlegar kenningar til skilnings á Völuspá og fer ótroðnar slóðir.
|
Handan um höf - þýðingar og frumsamin ritverk Helga Hálfdanarsonar í Þjóðmenningarhúsinu
Heimilisfang:
Hverfisgötu 15
Stadur:
101 Miðbær
Landshluti:
Reykjavík
Simi:
545-1400
Fax:
545-1401
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
Opið daglega frá kl. 11 - 17. Ókeypis aðgangur á miðvikudögum. Ókeypis leiðsögn fyrir skólahópa
Tegund stofnunar:
Sýning(Menning)
Safnstjóri / forstöðumaður:
Guðríður Sigurðardóttir
/safnastarf/upload/files/templates/museums/4547a7e9-bb05-4d50-bceb-cd4a6beb53eb_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 20.12.2007 12:04:20





