AÐGENGI
Í sýningarsölum Náttúrufræðistofunnar er mest áhersla lögð á dýra- og steinaríkið. Eitt fullkomnasta safn af skeljum og kuðungum á landinu er á staðnum. Fuglasafnið er einnig fjölbreytt, einkum af vatnafuglum. Þá eru til sýnis spendýr, krabbadýr, skrápdýr og fiskar. Í fiskabúrum gefur að líta bleikjur, urriða, ýmsa sjófiska og hryggleysingja. Hinn sérstaki og fágæti kúluskítur frá Mývatni er einnig til sýnis. Jarðfræði Íslands er kynnt með stórum eitnökum af helstu gerðum bergs ásamt góðu safni kristalla. Á veggspjöldum eru upplýsignar um myndun og mótun landsins og fjallað um jarðfræðileg agerð Íslands. Helstu rannsóknir Náttúrufræðistofunnar eru á sviði vatnalíffræði. Fengist er jafnt við grunnrannnsóknir og þjónustuverkefni fyrir ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga.
|
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Heimilisfang:
Hamraborg 6a
Stadur:
200 Kópavogur
Landshluti:
Reykjavík
Simi:
5700430
Fax:
5700431
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
mán-fim kl. 10-20fös kl. 11-17lau-sun kl. 13-17
Tegund stofnunar:
Náttúruminjasafn
Safnstjóri / forstöðumaður:
Hilmar J. Malmquist
/safnastarf/upload/files/templates/museums/98d0ff08-6d9b-4b80-a199-95650c001759_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 11.12.2007 16:03:36





