AÐGENGI
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hýsir höggmyndir og teikningar eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara ásamt heimildum um listamanninn og er miðstöð rannsókna á list hans. Safnið er sjálfseignarstofnun, stofnuð að listamanninum látnum á heimili hans og vinnustofu árið 1984 og opnað almenningi 1988. Auk þess að kynna list Sigurjóns býður safnið upp á sýningar á verkum annarra listamanna og yfir sumartímann eru vikulega haldnir tónleikar sem skipa sér fastan sess í menningarlífi Reykjavíkurborgar. Sigurjón Ólafsson fæddist á Eyrarbakka árið 1908 og lést í Reykjavík 1982. Hann vann jafnhliða abstrakt- og raunsæisverk og er talinn einn fremsti portrettlistamaður sinnar samtíðar.
|
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Heimilisfang:
Laugarnestangi 70
Stadur:
105 Austurbær
Landshluti:
Reykjavík
Simi:
5532906
Fax:
5814553
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
A sumrin 14 - 17 alla daga nema mánudaga Á vetrum 14 - 17, laugardaga og sunnudaga. Lokað í desember og janúar
Tegund stofnunar:
Listasafn
Safnstjóri / forstöðumaður:
Birgitta Spur
/safnastarf/upload/files/templates/museums/c1682c83-5bb4-473d-a402-e63a07a8b361_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 27.11.2009 14:14:31





