AÐGENGI
Handritin - saga handrita og hlutverk um aldir er sýning Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Þjóðmenningarhúsinu. Á sýningunni gefur að líta þjóðargersemarnar; ýmis merkustu skinnhandritin frá miðöldum, svo sem Konungsbækur Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyjarbók og valin handrit lagabóka, kristilegra texta og Íslendingasagna, og auk þess nokkur mikilvæg pappírshandrit frá seinni öldum. Hin fornu skinnhandrit geyma einstæðar sögur, kvæði og frásagnir sem varpa ljósi á samfélag, trúarbrögð og hugarheim hinna norrænu þjóða frá ásatrú í gegnum umbreytingatímabil landafunda, landnáms og kristnitöku. Brugðið er upp myndum frá tímabilinu fyrir ritun handritanna, og af tilurð þeirra, hlutverki, söfnun, útgáfu og viðtökum þeirra hér á landi og í öðrum löndum. Einnig er bókagerðinni sjálfri; skinnverkuninni, bleksuðunni og rituninni, gerð skil í sérstöku rými. Safnkennari Árnastofnunar tekur á móti nemendum á öllum skólastigum og veitir leiðsögn og fræðslu um sýninguna. Leiðsögn fyrir hópa af öllum gerðum býðst samkvæmt pöntun. Tungumál: íslenska, enska og skandinavíska. Föst leiðsögn á íslensku er í hádeginu á fimmtudögum kl. 12:10 og á ensku alla mánudaga og föstudaga kl. 15:30.
|
Handritin í Þjóðmenningarhúsinu
Heimilisfang:
Hverfisgötu 15
Stadur:
101 Miðbær
Landshluti:
Reykjavík
Simi:
545-1400
Fax:
545-1401
[http://www.test.com]
Opnunartimi:
Opið daglega frá kl. 11 - 17. Ókeypis aðgangur á miðvikudögum. Ókeypis leiðsögn fyrir skólahópa.
Tegund stofnunar:
Sýning(Menning)
Safnstjóri / forstöðumaður:
Sýning Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
/safnastarf/upload/files/templates/museums/d35eb89c-75ea-47c4-9823-848df1da04b7_takn.jpg
|
|
UPPFÆRT : 20.12.2007 11:55:02





